Ferill 1093. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1623  —  1093. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um grænar fjárfestingar.

Frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.


     1.      Hversu hátt hlutfall af fjárfestingum ríkisins undanfarin tvö ár telst til grænna fjárfestinga í þeim skilningi að vera til þess fallnar að draga úr losun mengandi gróðurhúsalofttegunda, vernda vistkerfi eða stuðla með öðrum hætti að því að Ísland uppfylli alþjóðlegar skuldbindingar sínar á sviði loftslagsmála? Hver er fjárhæð þessara fjárfestinga?
     2.      Telur ráðherra þessar fjárfestingar til þess fallnar að stuðla að því að íslensk stjórnvöld nái fram markmiðum sínum í loftslagsmálum?


Skriflegt svar óskast.